Fotbolti.net
31.08.05 - 11:26
Magnús Már Einarsson

Grétar Rafn til AZ (Staðfest)

Grétar Rafn til AZ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við hollenska liðið AZ Alkmaar með möguleika á framlengingu um tvö ár.
Grétar Rafn sem getur leikið bæði í miðjunni og í bakverði hefur vakið athygli fyrir góðan leik hjá svissneska liðinu Young Boys og AZ hefur nú gengið frá kaupunum á honum en innan við ár er síðan Grétar gekk til liðs við Young Boys frá ÍA.

Grétar sagði í samtali við Fótbolti.net að toppaðstæður væru hjá AZ og þetta væri stærra stökk en fólk gerði sér grein fyrir. AZ er sem stendur í toppsæti í toppsætinu í hollensku deildinni en Lois Van Gaal fyrrum þjálfari Barelona er þjálfari liðsins núna.

Grétar Rafn verður að sjálfsögðu í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Króötum og Búlgörum í undankeppni HM á næstunni.

Sjá einnig:
Viðtal við Grétar frá því fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.