31.08.05 - 11:47
Magnús Már Einarsson
Job lánaður til Sádi-Arabíu (Staðfest)




Al Ittihad frá Sádi Arabíu hefur fengið Joeph Desire Job sóknarmann Middlesbrough að láni út leiktíðina. Job sem er Kamerúni hefur fengið fá tækifæri hjá Middlesbrough eftir að Yakubu Aiyegbeni kom til liðsins frá Portsmouth í sumar.
Job hefur fyrr í sumar hafnað því að fara til Crystal Palace og átt í viðræðum við West Ham en nú hefur hann farið til Al Ittihad. Job sem kom til Boro frá Lens árið 2000 hefur leikið 100 leiki fyrir enska liðið og skorað í þeim 22 mörk.
Vissir þú að:
Job horfir ekki á kvikmyndir en talar aftur á móti mikið í símann.
Vissir þú að:
Job horfir ekki á kvikmyndir en talar aftur á móti mikið í símann.
