31.08.05 - 12:26
Hafliði Breiðfjörð
Zurab Khizanishvili lánaður til Blackburn (Staðfest)

Zurab Khizanishvili


Zurab Khizanishvili

Blackburn Rovers gengu í morgun frá eins árs lánssamningi á Zurab Khizanishvili frá Glasgow Rangers en að árinu loknu á Blackburn möguleika á að kaupa leikmanninn. Portsmouth hafði einnig haft áhuga á Khizanishvili sem er 23 ára gamall varnarmaður.
Khizanishvili gekk í raðir Rangers frá Dundee árið 2003 en missti sæti sitt í liðinu á síðustu leiktíð og var næstum genginn í raðir Schalke 04 í sumar. Hann spilaði sem miðvörður hjá Rangers en hefur einnig spilað sem miðjumaður.
Í upphafi leiktíðar hafði hann sagst ætla að berjast fyrir sæti sínu hjá Rangers en nú er hann farinn eftir komu Jose Pierre-Fanfan, Brahim Hemdani, Ian Murray og Julien Rodriguez.
Í upphafi leiktíðar hafði hann sagst ætla að berjast fyrir sæti sínu hjá Rangers en nú er hann farinn eftir komu Jose Pierre-Fanfan, Brahim Hemdani, Ian Murray og Julien Rodriguez.
