31.08.05 - 12:36
Hafliði Breiðfjörð
Lee Young Pyo til Tottenham (Staðfest)




Tottenham gengu í morgun frá kaupum á Lee Young-Pyo varnarmanni PSV Eindhoven. Lee er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem var í liði Suður Kóreu sem komst í undanúrslit á heimsmeistaramótinu 2002. Hann er talinn hafa kostað 1,35 milljón punda.
Martin Jol stjóri Tottenham var hæstánægður með kaupin en hann sagði: ,,Hann hefur spilað í Meistaradeildinni og er besti vinstri bakvörður í Hollandi. Mörg ítölsk félög hefðu viljað fá hann."
Lee var í þrjú ár hjá PSV en hann fór þangað er Guus Hiddink tók við liðinu eftir HM 2002 en Hiddink hafði þjálfað hann hjá landsliði Suður Kóreu.
Lee var í þrjú ár hjá PSV en hann fór þangað er Guus Hiddink tók við liðinu eftir HM 2002 en Hiddink hafði þjálfað hann hjá landsliði Suður Kóreu.
