Fotbolti.net
31.08.05 - 13:52
Magnús Már Einarsson

Ziegler lánaður til Hamurg (Staðfest)

Ziegler er hér til hægri.

Ziegler er hér til hægri.

Canon
Þýska liðið Hamburg SV hefur fengið svissneska kantmanninn Reto Ziegler að láni frá Tottenham. Hinn 19 ára Ziegler náði samkomulagi við HSV í síðustu viku eins og við höfum greint frá en félögin hafa nú einnig náð saman.
Ziegler hefur ekkert spilað það sem af er tímabilinu þar sem Andy Reid er kominn á undan honum í goggunarröðinni hjá Tottenham. Ziegler er eins og fyrr segir vinstri kantmaður og því aukast möguleikar Emils Hallfreðssonar hjá liðinu við brottför hans.

Martin Jol sagði um Ziegler: ,,Hann átti sterkt tímabil á síðasta tímabili en hann þarf að spila fleiri leiki. Að spila hjá öðru mjög góðu liði er frábært tækifæri fyrir hann. Það verður gott fyrir hann að fá meiri reynslu, en hann er ennþá leikmaður framtíðarinnar fyrir okkur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.