31.08.05 - 14:25
Mart Poom á leiðinni til Arsenal (Staðfest)

Arsene Wenger stjóri Arsenal hefur fengið Mart Poom markmann Sunderland til liðs við sig. Poom er frá Eistlandi og mun væntanlega vera varaskeifa á Highbury fyrir Jens Lehmann en kaupin á fyrsta valkosti Wenger, Sebastian Viera, féllu uppfyrir á síðustu stundu.
Samkvæmt fjölmiðlum á Englandi var Andreas Isaksson markmaður Rennes í Frakklandi einnig á óskalista Arsenal en úr þeim kaupum verður ekki. Poom er reyndar meiddur sem stendur en hann þarf mánuð til að jafna sig af meiðslum áður en hann getur tekist á við Lehmann um markmannsstöðuna.
Sunderland hefur staðfest félagaskiptin en í fréttatilkynning frá knattspyrnusambandi Eistlands var þetta staðfest í morgun. Poom kemur á lánssamningi til 1. janúar og eftir það verða hugsanlega kaup á markmanninum rædd.
Justin Hoyte varnarmaður Arsenal fer í staðinn til Sunderland að láni. Hann er mikið efni en á erfitt með að komast inn í stjörnum prýtt Arsenal liðið eins og staðan er í dag. Hann fær líklega lánssamning út tímabilið hjá nýliðunum í Úrvalsdeildinni.