31.08.05 - 15:01
Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þ. Sigurðsson til Stoke City (Staðfest)

Hannes Þorsteinn Sigurðsson framherji Viking í Noregi er genginn til liðs við Stoke City eftir að félögin komust að samkomulagi nú í dag. Hannes var samningsbundinn Viking út tímabilið og hafði samið við Stoke um að ganga til liðs við þá um áramótin. Stoke vildi hinsvegar fá hann strax og náði því samkomulagi við Viking um kaupverð.
Ljóst er að koma Allan Borgvardt framherja FH til Viking auðveldaði fyrir því að mál Hannesar gengi í gegn en Allan skrifaði í gær undir samning við Viking út tímabilið.
Hannes Sigurðsson gekk til liðs við Viking frá FH árið 2002 og byrjaði strax að skora í fyrstu leikjum sínum þá. Honum hefur hinsvegar ekki gengið mjög vel að festa sig í sessi í byrjunarliði Viking. Hann hefur leikið með U-21 árs landsliði Íslands undanfarin ár en hóf nýlega að leika með A-landsliðinu.
Hannes er meiddur þessa stundina og því ekki með landsliðum Íslands sem mæta Króatíu og Búlgaríu á laugardag og miðvikudag. Hann flýgur hinsvegar til Englands á morgun þar sem hann mun hefja störf hjá sínu nýja félagi.
Hjá Stoke hittir Hannes fyrir Þórð Guðjónsson sem gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra.