Fotbolti.net
31.08.05 - 15:13
Hafliði Breiðfjörð

David Connolly til Wigan (Staðfest)

David Connolly til Wigan (Staðfest)
Canon
Wigan gengu í dag frá kaupum á David Connolly leikmanni Leicester City en kaupverðið er tvær milljónir punda og gæti hækkað upp í þrjár ef Wigan heldur sér í ensku úrvalsdeildinni. Connolly sem er 28 ára gamall skrifaði í kjölfarið undir þriggja ára samning við Wigan.
Hann hefur áður leikið með Watford, Feyenoord, Wolves, West Ham og Wimbledon en hefur byrjað tímabilið vel með Leicester og skorað fimm mörk það sem af er leiktíðarinnar.

,,Ég er hæstánægður með að vera kominn loksins í úrvalsdeildina," sagði Connolly. ,,Wigan er framsækið og metnaðgargjarnt félag með frábæran stjóra."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.