31.08.05 - 15:18
Hafliði Breiðfjörð
Hoyte til Sunderland (Staðfest)




Sunderland hafa gengið frá samningum við varnarmanninn Justin Hoyte en leikmaðurinn er lánaður frá Arsenal út leiktíðina. Hann er tvítugur og spilaði 12 leiki fyrir Arsenal á síðustu leiktíð bæði sem miðvörður og hægri bakvörður.
Mick McCarthy stjóri Sunderland sagði: ,,Justin er mjög hæfileikaríkur leikmaður. Hann er fljótur og getur spilað hvar sem er í öftustu varnarlínu. Hann hefur reynslu í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni og fjölhæfni hans gefur mér möguleika Ég er hæstánægður með að fá hann um borð."
