31.08.05 - 16:23
Arnar Geir Halldórsson
Andy Van Der Meyde til Everton (Staðfest)

Þá er það loks orðið staðfest að Hollendingurinn Andy Van Der Meyde mun ganga til liðs við Everton. Leikmaðurinn hefur verið á för til félagsins um tíma en þrálat meiðsli kappans hafa frestað því og var óljóst hvort Everton myndu taka áhættuna en ákvaðu þeir að ganga frá kaupunum áður en félagsskiptaglugganum lokaði.
Þetta mun koma til með að styrkja Everton verulega í Uefa Cup sem og baráttunni um Evrópusæti í Ensku Úrvalsdeildinni. Meyde sem er 25 ára skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið eftir misheppnaða dvöl á Ítalíu en hann lék með Inter Milan.
,,Ég er mjög ánægður í dag. Ég er glaður að fá að spila fyrir Everton því þetta er mjög notalegur klúbbur og vona ég að ég geti farið að spila minn fótbolta því undanfarin tímabil hafa verið mér erfið" sagði Van Der Meyde við heimasíðu nýja félagsins síns.
Monaco voru nálægt því að kaupa kappann fyrr í sumar en ekkert varð á því og verður spennandi að sjá hvernig kappinn mun standa sig á Goodison Park en upphæð hefur ekki verið gefin upp.