31.08.05 - 16:23
Magnús Már Einarsson
Reiziger til PSV (Staðfest)

PSV Eindhoven hefur fengið varnarmanninn Michael Reiziger frá Middlesbrough. Þessi 32 ára Hollendingur hefur ekki gengið nógu vel að sanna sig hjá Boro síðan hann kom til liðsins frá Barcelona í fyrra og nú hefur hann fengið að fara frítt til PSV.
Guus Hiddink þjálfari PSV vonar að Reiziger fylli í það skarð sem Lee-Young-pyo og Wilfred Bouma skildu eftir sig en þeir fóru til Tottenham og Aston Villa í vikunni.
Reiziger sem stóðst læknisskoðun hjá PSV í dag og skrifaði undir tveggja ára samning við liðið sagði á blaðamannafundi: ,,Ég er mjög glaður að hafa fengið tækifærið á að gera þessi skipti."
Vissir þú að:
Reiziger er mikill aðdáandi bíla og hann fór til dæmis árlega á Formulu-1 keppnina í Barcelona þegar hann spilaði með Barca.