31.08.05 - 16:42
Magnús Már Einarsson
Bakke til Aston Villa á láni (Staðfest)




Norski miðjumaðurinn Erik Bakke hefur gengið til liðs við Aston Villa á lánssamningi frá Leeds en samningurinn gildir þar til í janúar. Bakke sem er 27 ára hefur aðeins leikið fjóra leiki með Leeds frá því í apríl 2004 vegna meiðsla.
Bakke sem er samherji Gylfa Einarssonar hjá Leeds ku hafa nokkuð há laun og því hafi liðið verið tilbúið að láta hann fara til Aston Villa. Þetta er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Villa í mánuðinum á eftir þeim Milan Baros og Wilfred Bouma.
David O'Leary stjóri Villa þekkir Bakke vel því hann keypti Norðmanninn til Leeds á sínum tíma.
Vissir þú að:
Bakke og Gylfi Einarsson samherji hans hjá Leeds eru góðir vinir.
David O'Leary stjóri Villa þekkir Bakke vel því hann keypti Norðmanninn til Leeds á sínum tíma.
Vissir þú að:
Bakke og Gylfi Einarsson samherji hans hjá Leeds eru góðir vinir.
