31.08.05 - 19:52
Hafliði Breiðfjörð
Bentley til Blackburn (Staðfest)




Blackburn hafa fengið framherjann unga David Bentley á láni frá Arsenal út leiktíðina. Bentley sem er 21 árs gamall var alla síðustu leiktíð á láni hjá Norwich og bað um að fá að yfirgefa Arsenal nú í sumar þar sem hann hefur fengið fá tækifæri.
Arsene Wenger sagðist nýlega vera tilbúinn að selja Bentley og Wolves höfðu áhuga á að kaupa hann. Bentley mun ekki spila með Blackburn gegn Arsenal samkvæmt reglum ensku deildarinnar.
