31.08.05 - 20:29
Hafliði Breiðfjörð
Dario Silva til Portsmouth (Staðfest)




Úrúgvæmaðurinn Dario Silva gekk í kvöld í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth frá spænska félaginu Sevilla. Silva kemur á frjálsri sölu og skrifaði undir tveggja ára samning við Portsmouth eftir að samningi hans við Sevilla var rift þó ár væri eftir af honum.
Fyrr í mánuðinum hafði verið talið að Silva hafi verið á leið til Colon í Argentínu en ekkert varð af því. Honum hafði verið sagt að hann væri ekki í plönum Sevilla fyrir leiktíðina.
