Fotbolti.net
31.08.05 - 22:39
Magnús Már Einarsson

Diao lánaður til Portsmouth (Staðfest)

Diao lánaður til Portsmouth (Staðfest)
Canon
Senegalski miðjumaðurinn Salif Diao hjá Liverpool hefur gengið til liðs við Portsmouth á lánssamningi út þessa leiktíð. Diao hefur ekkert leikið með Liverpool á leiktíðinni en hann var í láni hjá Birmingham undir lok síðustu leiktíðar og lék aðeins tvo leiki með liðinu.
Diao var orðaður við Middlesbrough og Sunderland en hefur nú gengið til liðs við Portsmouth sem getur keypt hann að lánssamningnum loknum. eal,

Peter Storrie framkvæmdarstjóri Portsmouth sagði meðal annars við heimasíðu liðsins: ,,Salif er keppnishæfur miðjumaður og með því að fá hann höfum við nú mjög keppnishæfa miðju. Á seinustu dögum höfum við fengið sókndjarfan miðjumann, markaskorara og nú annan sterkan leikmann sem er góður í að tækla."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.