Fotbolti.net
31.08.05 - 22:59
Arnar Geir Halldórsson

Solano til Newcastle (Staðfest)

Solano til Newcastle (Staðfest)
Canon
Perúmaðurinn knái Nolberto Solano er genginn til liðs við Newcastle United frá Aston Villa en hann kom einmitt þaðan er hann gekk í raðir Villa manna. Solano virtist um tíma á leið til Liverpool en það gekk ekki eftir og er hann nú kominn á fornar slóðir á St.James Park.
Solano komst í gegnum læknisskoðun í dag og skrifaði undir samninginn aðeins klukkustund áður en leikmannaglugganum lokaði. Í kaupunum er innifalið að James Milner muni ganga til liðs við Aston Villa í eitt ár að láni í von um að fá tækifæri í byrjunarliði en hann hefur fengið fá tækifæri hjá Newcastle.

Þess má til gamans geta að Milner hittir fyrir hjá Villa, fyrrum lærimeistara sinn hjá Leeds United, David O´Leary sem nú stjórnar Villa-mönnum.

Newcastle hafa verið duglegir við að sanka að sér leikmönnum og hafa nýgengið frá kaupum á Michael Owen en Solano mun væntanlega sjá um að mata þá Owen, Shearer og Alberto Luque í sókninni og ekki veitir af þarsem Newcastle hafa ekki enn skorað mark það sem af er deildinni!

Newcastle hafa þó ekki einungis verið að kaupa en í dag seldu þeir Jermaine Jenas til Tottenham á 8 milljónir punda. Solano spilaði á sínum tíma 233 leiki fyrir Newcastle og munu eflaust ófáir leikirnir bætast í safnið núna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.