Fotbolti.net
31.08.05 - 23:04
Hafliði Breiðfjörð

Sergio Ramos til Real Madrid (Staðfest)

Sergio Ramos til Real Madrid (Staðfest)
Canon
Real Madrid sömdu nú í kvöld við Sergio Ramos varnarmann Sevilla aðeins nokkrum mínútum áður en félagskiptaglugganum lokaði í Evrópu. Samningurinn gildir til átta ára en Real greiðir 33 milljónir dollara fyrir leikmanninn.
Ramos er 19 ára gamall og verða þriðju stærstu kaup sumarsins í Evrópu á eftir Shaun Wright Phillips og Michael Essien sem báðir fóru til Chelsea.

Madrid fjármögnuðu kaupin á Ramos með sölunni á Michael OWen til Newcastle sem færði þeim einmitt 33 milljónir dollara. Sú upphæð dugði til að kaupa upp samning Ramos við Sevilla en klásúla var í samningi hans um þessa upphæð.

Með kaupunum hafa Real eytt 98,7 milljónum dollara í sumar. Auk Ramos keyptu þeir Robinho, Julio Baptista, Pablo Garcia og Carlos Diego.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.