31.08.05 - 23:10
Hafliði Breiðfjörð
Rochemback til Middlesbrough (Staðfest)




Brasilíumaðurinn Fabio Rochemback gekk í kvöld í raðir Middlesbrough. rochemback var í láni hjá Sporting í Portúgal undanfarin tvö ár frá Barcelona en spænska félagið staðfesti félagaskiptin í kvöld.
Rochemback gekk í raðir Barcelona á fimm ára samning frá Internacional í júlí 2001 en kaupverð þá var 12,2 milljónir dollara. Hann yfirgaf Börsunga svo til Sporting á þriggja ára samning ári tveimur árum síðar.
Barcelona sagði að þeir hafi fengið sárabætur upp á 1,5 milljónir evra frá Middlesbrough.
Barcelona sagði að þeir hafi fengið sárabætur upp á 1,5 milljónir evra frá Middlesbrough.
