Fotbolti.net
31.08.05 - 23:14
Hafliði Breiðfjörð

Bothroyd til Charlton (Staðfest)

Bothroyd til Charlton (Staðfest)
Canon
Charlton rétt náðu að semja við Jay Bothroyd fyrrum framherja Arsenal og Coventry áður en félagaskiptaglugganum lokaði í kvöld en hann kemur frá Perugia á Ítalíu.
Talið er að hann hafi farið frítt til Charlton vegna fjárhagsvandræða Perugia. Bothroyd var á síðustu leiktíð á láni hjá Blackburn þar sem hann skoraði aðeins eitt mark í úrvalsdeildinni.

Hann verður tíundu kaup Charlton í sumar og kemur í stað Francis Jeffers sem var lánaður til Rangers í Skotlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.