31.08.06 - 09:43
Hafliði Breiðfjörð
Tottenham lánar Defendi til Roma (Staðfest)

Rodrigo Defendi í leik með Udinese gegn Inter í febrúar.

Mynd: Getty Images

Rodrigo Defendi í leik með Udinese gegn Inter í febrúar.

Mynd: Getty Images
Tottenham hafa lánað varnarmanninn Rodrigo Defendi til Roma út tímabilið en Brasilíumaðurinn sem er tvítugur að aldri fer til Roma eftir að lisfélagi hans, Lee Young-Pyo hafnaði því að fara sömu leið.
Defendi hefur ekki náð að sanna sig hjá Tottenham síðan hann var keyptur í júlí 2004 og nú eiga Roma möguleika á að gera félagaskipti hans endanleg í lok leiktíðarinnar.
Jacques Santini fékk Defendi til félagsins frá Cruzeiro en Martin Jol ákvað á síðustu leiktíð að hann yrði ekki notaður í leikmannahóp sínum og lánaði hann þá til Udinese.
Jacques Santini fékk Defendi til félagsins frá Cruzeiro en Martin Jol ákvað á síðustu leiktíð að hann yrði ekki notaður í leikmannahóp sínum og lánaði hann þá til Udinese.
