31.08.06 - 10:16
Hafliði Breiðfjörð
Andy Cole til Portsmouth (Staðfest)

Andy Cole í leik með Manchester United.

Mynd: Getty Images

Andy Cole í leik með Manchester United.

Mynd: Getty Images
Andy Cole framherji Manchester City er gengin í raðir Portsmouth en hann komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í morgun og skrifaði svo undir tveggja ára samning.
Portsmouth greiða City allt að eina milljón punda en það fer allt eftir hversu marga leiki framherjinn mun spila með þeim en Cole er orðinn 34 ára gamall. Talið er að nýji samningurinn skili honum 40 þúsund pundum í vikulaun.
City vildu halda Cole en hann lýsti í gær yfir áhuga á að yfirgefa félagið. Peter Storrie framkvæmdastjóri Portsmouth staðfesti í gærkvöld áhuga sinna manna á að fá Cole sem nú er kominn til þeirra.
City vildu halda Cole en hann lýsti í gær yfir áhuga á að yfirgefa félagið. Peter Storrie framkvæmdastjóri Portsmouth staðfesti í gærkvöld áhuga sinna manna á að fá Cole sem nú er kominn til þeirra.
