31.08.06 - 10:21
Hafliði Breiðfjörð
Ricardo Fuller til Stoke City (Staðfest)

Ricardo Fuller í baráttu við John Terry í leik Englands og Jamaíka.

Mynd: Getty Images

Ricardo Fuller í baráttu við John Terry í leik Englands og Jamaíka.

Mynd: Getty Images
Stoke City gengu í morgun frá kaupum á Ricardo Fuller framherja Southampton. Fuller sem er 26 ára gamall landsliðsmaður frá Jamaíka komst í gegnum læknissoðun hjá félaginu í morgun og skrifaði í kjölfarið undir þriggja ára samning.
Fuller er ætlað að leysa það skarð sem Hannes Sigurðsson skildi eftir sig þegar hann fór í dönsku deildina í gær.
Fuller skoraði 27 mörk í 57 leikjum með Preston en fór svo til Portsmouth og þaðan til Southampton í ágúst 2005. Hann gerði lítið þar hinsvegar vegna meiðsla.
Hann var á láni hjá Ipswich á síðustu leiktíð en auk þessara félaga hefur hann einnig leikið fyrir Hearts og Crystal Palace.