31.08.06 - 10:54
Hafliði Breiðfjörð
Oliveira til AC Milan og Vogel til Betis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
AC Milan hafa keypt brasilíska framherjann Ricardo Oliveira frá Real Betis á Spáni en þeir staðfestu þessi kaup í dag.
Oliveira gerir fimm ára samning við AC Milan en kaupverð var ekki gefið upp. Hluti af kaupverðinu er hinsvegar svissneski miðjumaðurinn Johann Vogel sem fer til Real Betis á móti.
Oliæveira var einn af markahæstu leikmönnum spænsku deildarinnar árið 2005 með 22 mörk. Hann hafði áður spilað með Valencia en með þeim vann hann spænska titilinn og UEFA Cup árið 2004.
Koma hans til Mílanó mun hjálpa AC Milan að leysa stöðu Andriy Shevchenko sem fór til Chelsea í maí.