31.08.06 - 10:58
Hafliði Breiðfjörð
Watford kaupir Tommy Smith aftur frá Derby (Staðfest)

Tommy Smith.

Mynd: Getty Images

Tommy Smith.

Mynd: Getty Images
Watford keyptu í dag Tommy Smith frá Derby County en kaupverðið á leikmanninum er hálf milljón punda.
Smith hafði komið upp úr unglingastarfinu hjá Watford en fór þaðan 2003. Það má því líta á sem svo að hann sé kominn heim á ný.
Smith hafði komið upp úr unglingastarfinu hjá Watford en fór þaðan 2003. Það má því líta á sem svo að hann sé kominn heim á ný.
Hann gerir fjögurra ára samning við Watford en áður en hann yfirgaf þá árið 2003 hafði hann leikið 167 leiki fyrir félagið. Þá fór hann til Sunderland í stuttan tíma áður en Derby keyptu hann.
Smith sem er 26 ára gamall hóf feril sinn sem framherji en hefur oftast verið notaður sem kantmaður hjá Derby County.
Smith sem er 26 ára gamall hóf feril sinn sem framherji en hefur oftast verið notaður sem kantmaður hjá Derby County.
