31.08.06 - 12:48
Hafliði Breiðfjörð
Wayne Routledge til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hafa fengið Wayne Routledge á láni frá Tottenham út tímabilið en frá þessu var gengið eftir að Steed Malbranque gekk í raðir Tottenham frá Fulham nú í dag.
Routledge kom til Tottenham frá Crystal Palace í júlí 2005 en gat lítið leikið með liðinu á síðustu leiktíð eftir að hafa fótbrotnað auk þess sem Aaron Lennon hélt honum út úr liðinu. Hann var því lánaður til Portsmouth þar sem hann lék 13 leiki.
,,Wayne var mjög óheppinn á síðustu leiiktíð þegar hann gerði svo vel í friðarbikarnum en meiddist svo illa í fyrsta úrvalsdeildarleiknum okkar gegn Portsmouth," sagði Martin Jol stjóri Tottenham í dag.
,,Þá fékk Aaron Lennon tækifærið hans og allir vita hversu mikið hann bætti sig þegar leið á tímabilið og það endaði með því að hann var kallaður í HM hóp enska landsliðsins. Á sama tíma fór Wayne til Porstmouth á láni og sneri aftur á æfingatímabilinu og virtist beittur."
,,Það er mikilvægt að Wayne haldi áfram að spila stöðugt í úrvalsdeildinni. Hann er verðmætur hluti af hópnum okkar og við viljum að hann fái tækifæri til að halda áfram að bæta sig, svo þetta lán er bæði honum sem einstaklingi og okkur sem félagi til bóta."