31.08.06 - 15:47
Magnús Már Einarsson
Legwinski til Ipswich Town (Staðfest)

Legwinski (til hægri) er farinn til Ipswich.

Mynd: Getty Images

Ipswich Town hefur gengið frá kaupunum á franska miðjumanninum Sylvain Legwinski en þessi 33 ára leikmaður hefur ekki verið í náðinni hjá Fulham þar sem hann hefur verið undanfarin fimm ár.
Hinn 33 ára gamli Legwinski hefur ekki spilað með Fulham síðan í janúar og félagið spanderaði ekki einu sinni í að gefa honum treyjunúmer fyrir þetta tímabil.
Hann æfði í nokkra daga með Ipswich í síðustu viku og lék 45 mínútur í æfingaleik fyrir lokuðum dyrum. Það sannfærði Ipswich um að gera tveggja ára samning við hann. Þessi fyrrum leikmaður Bordeaux og Monaco kom til Fulham fyrir fimm árum á 3,3 milljónir punda en hann lék yfir 150 leiki með félaginu.
Jim Magilton stjóri Ipswich hefur einnig staðfest Dele Adebola framherji Coventry gæti verið á leið til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.