Fotbolti.net
31.08.06 - 16:18
Hafliði Breiðfjörð

Tevez og Mascherano til West Ham (Staðfest)

Carlos Tevez.

Carlos Tevez.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hafa nú staðfest á vefsíðu sinni að Carlos Tevez og Javier Mascherano séu gengnir til liðs við félagið frá Corinthians í Brasilíu.

Ekki er um lánssamninga að ræða eins og fréttir höfðu borist af heldur kaupir West Ham þá á upphæð sem þeir gefa ekki upp og segja alla hluta samningsins leyndarmál.
Með þessu slá West Ham flestum stærstu liðum Evrópu við og næla í hinn magnaða Tevez sem sýndi listir sínar með landsliði Argentínu á Heimsmeistaramótinu í sumar og er talinn einn efnilegasti framherji heims í dag.

Er hann hóf feril sinn hjá Boca Juniors var hann sagður hinn nýji Diego Maradona en þar hóf hann feril sinn 17 ára gamall.

Tevez var kjörinn knattspyrnumaður ársins í Argentínu 2003 og 2004 og líka íþróttamaður ársins 2004. Hann hafði þá leitt Boca Juniors til sigurs í deildinni og Copa Libertadores.

Í desember 2004 gekk hann í raðir Corinthians í Brasilíu en kaupverðiði var 22,6 milljónir dollara og han varð dýrasti knattspyrnumaður sem hefur gengið milli félaga í Suður Ameríku.

Javier Mascherano sem eins og Tevez er 22 ára gamall er afturliggjandi miðjumaður sem vakti athygli á Heimsmeistaramótinu í sumar. Hann fór frá River Plate til Corinthians árið 2004 en kaupverðið var 15 milljónir dollara.

Sjá einnig:
Samsæriskenning um Tevez og Mascherano málið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.