Fotbolti.net
31.08.06 - 16:55
Hafliði Breiðfjörð

Omar Pouso lánaður til Charlton (Staðfest)

Omar Pouso í baráttu við  Jermaine Jenas í leiknum gegn Englandi.

Omar Pouso í baráttu við Jermaine Jenas í leiknum gegn Englandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrúgvæski miðjumaðurinn Omar Pouso er genginn í raðir Charlton en hann er lánaður til félagsins frá Penarol í Úrúgvæ út tímabilið með möguleika á að enska félagið geti keypt hann eftir það.
Pouso vakti mikla athygli þegar hann skoraði æðisgengið mark fyrir Úrúgvæ í vináttulandsleik gegn Englandi í mars.

,,Ég er hæstánægður með að hafa fengið Omar," sagði Ian Dowie stjóri Charlton. ,,Hann er virkilega baráttuglaður leikmaður, hann skorar mörk og sendingar hans úr föstum leikatriðum eru góðar."

,,Ég hef séð hann spila nokkrum sinnum, meðal annars leikinn gegn Englandi þar sem hann skoraði undra mark en ég hef séð hann spila oftar en það. Hann hefur góða hæfileika, er á góðum aldri, og færir liðinu eitthvað nýtt."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.