31.08.06 - 17:21
Hafliði Breiðfjörð
Kevin Kilbane til Wigan (Staðfest)

Kevin Kilbane í leik með Everton.

Mynd: Getty Images

Kevin Kilbane í leik með Everton.

Mynd: Getty Images
Wigan Atheltic hafa gengið frá kaupum á Kevin Kilbane frá Everton. Kilbane sem var kallaður úr landsliðsæfingum Írlands í dag til að ganga frá samningum við Wigan gerir þriggja ára samning við félagið með möguleika á eins árs framlengingu.
Kilbane verður níundi leikmaðurinn sem gengur í raðir Wigan í sumar en áður höfðu komið þeir Emile Heskey, Fitz Hall, Emmerson Boyce, Denny Landzaat, Chris Kirkland, Antonio Valencia, Tomasz Cywka og Andrew Webster.
Paul Jewell stjóri Wigan er þó ekki hættur og sagði við komu Kilbane að meira gæti gerst áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.
Kilbane sem er fæddur í Preston á að baki 69 landsleiki fyrir hönd Írlands þar sem hann hefur skorað 5 mö-rk. Hann hefur verið 102 sinnum í byrjunarliði Everton síðan hann kom þangað frá Sunderland árið 2003.
Í heildina á hann að baki 372 deildarleiki á ferlinum en auk áðurnefndra liða hefur hann leikið með WBA og Preston.
,,Ég er ánægður með að Kevin hefur samþykkt að koma um borð. Hann bætir miklum gæðum við okkur, hefur mikla reynslu og hefur séð allt í úrvalsdeildinni. Ég hef lendi dáðst að honum því hann er svona Wigan leikmaður, trúr, sannur íþróttamaður, fljótur og hæfileikaríkur."
Kilbane sagði: ,,Wigan áttu frábært tímabil á síðasta ári, það sem þeir gerðu var ein af sögum úrvalsdeildarinnar. Þeir eru metnaðarfullt félag og hafa keypt frábæra leikmenn í sumar. Paul Jewell er stjóri sem mér líkar því hann vill vera náinn leikmönnunum og núna vil ég bara hitta allan hópinn og spila mitt hlutverk."