31.08.06 - 17:47
Hafliði Breiðfjörð
Ayala verður áfram hjá Valencia (Staðfest)

Roberto Ayala.

Mynd: Getty Images

Roberto Ayala.

Mynd: Getty Images
Argentíski varnarmaðurinn Roberto Ayala hefur leyst ágreining sinn við Valencia og ætlar að vera áfram hjá félaginu. Ayala sem er 33 ára gamall miðvörður hafði fyrr í mánuðinum beðið um að verða seldur frá félaginu en hann sagði að stjórnendur félagsins hafi gengið á bak loforða sinna um að framlengja samningi hans.
,,Ayala verður áfram að fullu trúr félaginu að minnsta kosti fram í júlí 2007," sagði i yfirlýsingu Valencia en þetta gerðist eftir fund leikmannsins og Juan Bautista Soler forseta félagsins.
,,Á meðan tímabilinu stendur munum við opna að nýju viðræður um hugsanlega framlengingu á samningnum. Leikmaðurinn staðfestir að hann muni ekki tala frekar um að ganga í raðir annars félags."
Villarreal og Real Madrid voru talin hafa haft áhuga á að fá Ayala í sínar raðir en hann kom til Valencia frá AC Milan árið 2000 og hefur átt mikilvægt hlutverk í liðinu sem komst í úrslit Meistaradeild Evrópu 2001, vann spænsku deildina 2002 og bæði deild og UEFA Cup 2004.