31.08.06 - 19:30
Hafliði Breiðfjörð
Kluivert til PSV Eindhoven (Staðfest)

Patrick Kluivert með Valencia.

Mynd: Getty Images

Patrick Kluivert með Valencia.

Mynd: Getty Images
Hollenski framherjinn Patrick Kluivert er genginn í raðir PSV Eindhoven í heimalandinu en félagið staðfesti þetta í kvöld. Hann kemur frá Valencia á Spáni á frjálsri sölu og gerir samning út tímabilið.
Kluivert sem er þrítugur hefur skorað 40 mörk í 79 landsleikjum fyrir hollenska landsliðið. Hann átti erfiða leiktíð með Valencia þar sem hann náði aðeins tíu leikjum og skoraði í þeim eitt mark en meiðsli hrjáðu hann mikið eftir að hann kom frá Newcastle í júní.
Félagaskipti hans töfðust upphaflega í þrjár vikur vegna meiðsla sem fundust í vinstra hné hans. Á endanum gengu þau hinsvegar í gegn og þegar komið var fram í febrúar fór hann í aðgerð.
Hann fór ekki með Valencia í æfingaferð til Hollands í sumar og var þess í stað sagt að leita sér að nýju félagi en Valencia hefur fengið Fernando Morientes í framlínunana og David Villa hefur staðið sig frábærlega upp á síðkastið.
Kluivert hóf feril sinn hjá Ajax árið 1994 og strax 18 ára gamall skoraði hann sigurmarkið í Meistaradeild Evrópu gegn AC Milan árið 1995. Hann hefur ekki verið valinn í landsliðið síðan Marco van Basten tók við því í júlí 2004.