31.08.06 - 20:00
Hafliði Breiðfjörð
Valencia lánar Fiore til Torino (Staðfest)

Stefano Fiore ásamt Manuel Pasqual hjá Fiorentina á síðustu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Stefano Fiore ásamt Manuel Pasqual hjá Fiorentina á síðustu leiktíð.

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Valencia lánaði í dag ítalska miðjumanninn Stefano Fiore til Torino á Ítalíu út tímabilið. Fiore hafði fengið þau skilaboð frá Quique Sanchez Flores þjálfara Valencia að hann fengi fá tækifæri í liðinu ef hann yrði áfram.
Fiore á eitt ár eftir af samningi sínum við Valencia. Hann var líka á láni frá félaginu á síðustu leiktíð, þá hjá Fiorentina. Hann er 31 árs gamall og kom til Valencia frá Lazio árið 2004 þear spænska félagið var þjálfað af Ítalanum Claudio Ranieri.
Fiore lék 20 leiki með Valencia á fyrstu leiktíð sinni en eftir að Ranieri var rekinn missti hann sæti sitt í liðinu. Hann hefur áður leikið með Parma, Udinese og Chievo.
Fiore lék 20 leiki með Valencia á fyrstu leiktíð sinni en eftir að Ranieri var rekinn missti hann sæti sitt í liðinu. Hann hefur áður leikið með Parma, Udinese og Chievo.
