31.08.06 - 20:33
Hafliði Breiðfjörð
Keane fær Kavanagh til Sunderland (Staðfest)

Graham Kavanagh í leik með wigan.

Mynd: Getty Images

Graham Kavanagh í leik með wigan.

Mynd: Getty Images
Sunderland hafa keypt hinn gamalreynda Graham Kavanagh frá Wigan en kaupverðið er hálf milljón punda. Kavanagh sem gerir þriggja ára samning við Sunderland verður önnur kaup Roy Keane hjá Sunderland frá því hann tók við liðinu í vikunni, kemur á eftir Dwight Yorke sem kom fyrr í dag.
Hann hafði komið til Wigan á sömu upphæð frá Cardiff City í mars 2005. Hann var í æfingabúðum írska landsliðsins í dag þegar hann fékk leyfi þjálfarans til að fara til að ganga frá samningum við Sunderland og eftir að hafa undirgengist læknisskoðun skrifaði hann undir samning.
Keane lék við hlið Kavanach í írska landsliðinu og reynsla hans mun án efa verða Sunderland dýrmæt. Talið er að jafnvel séu enn fleiri Írar á leið til Sunderland í dag en gárungarnir eru farnir að kalla félagið SundIreland.