Fotbolti.net
31.08.06 - 22:42
Magnús Már Einarsson

Charlton lánar Andersen til Leeds (Staðfest)

Tvo í vegg takk.  Andersen segir til.

Tvo í vegg takk. Andersen segir til.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hefur fengið Stephan Andersen markvörð Charlton Athletic að láni út leiktíðina en þessi 24 ára gamli Dani er ekki inn í plönum Iain Dowie stjóra síðarnefnda liðsins.
Andersen kom til Charlton frá AB Copenhagen á 721 þúsund pund í maí árið 2004 og lék sinn fyrsta leik í 4-0 tapi gegn Manchester United ári síðar. Eftir meiðsli Dean Kiley á síðustu leiktíð fékk Andersen tækifæri í byrjunarliðinu sem hann hélt þar til Thomas Myhre tók það af honum undir lok tímabilsins.

Þrátt fyrir stjóraskipti hjá Charlton í sumar fékk Andersen ekki aftur tækifæri í byrjunarliðinu því Dowie ákvað að fá Scott Carson að láni frá Liverpool og hefur hann verði í byrjunarliðinu í upphafi ensku úrvalsdeildarinnar.

Leeds vantar aftur á móti markvörð eftir að Tony Warner yfirgaf félagið eftir að hafa verði í láni hjá Fulham og þá er Neil Sullivan meiddur á læri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.