Fotbolti.net
31.08.06 - 23:21
Hörður Snævar Jónsson

Reyes til Real - Baptista til Arsenal (Staðfest)

Reyes er loksins farinn til Real.

Reyes er loksins farinn til Real.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Real Madrid hefur staðfest það að Jose Antonio Reyes sé kominn til liðs við félagið í skiptum við Julio Baptista á eins árs löngum lánssamningi. Reyes sem verður 23 ára gamall á morgun hafði áður sagt að honum langaði að fara aftur til Spánar og að Real væri draumafélagið hans. Reyes kom til Arsenal frá Sevilla árið 2004 og gildir núverandi samningur hans við Arsenal til 2011.
Arsene Wenger er mikill aðdáandi Baptista en honum mistókst að krækja í hann í fyrrasumar þegar Real Madrid klófesti þennan snjalla brasilíska leikmann frá Sevilla.

,,Núna er ég búinn að skrifa undir og mér líður eins og ánægðasta manni í heimi. Þangað til ég skrifaði undir var ég ekki rólegur. Á miðvikudagskvöld var mér tjáð að allt væri klárt. Arsenal sagði já, og Baptista ferðaðist til London, þá byrjaði ég að trúa þessu," sagði Reyes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.