31.08.06 - 23:35
Hörður Snævar Jónsson
Chimbonda til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Pascal Chimbonda er gengin til liðs við Tottenham frá Wigan. Tottenham hefur reynt að klófesta kappan í allt sumar en svo virtist sem að Chimbonda væri ekki förum frá Wigan fyrr en í dag þegar þeir sammþyktu tilboð Tottenham í hann.
Yfirmaður íþróttamála hjá Tottenham, Damien Comolli var ánægður með það að fá Chimbonda á White Hart Line. ,,Pascal (Chimbonda) er frábær hægri bakvörður. Góður varnarlega og góður í loftinu. Hann er fullkominn leikmaður sem getur einnig búið til sénsa fram á við."
Chimbonda var að vonum ánægður að gana til liðs við Tottenham. ,,Ég vildi alltaf vera hérna. Fyrir mér er þessi ákvörðun fótboltalegs eðlis. Tottenham er frábært félag þar sem ég vona að ég geti spilað minn besta fótbolta."