Fotbolti.net
31.08.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Patrick Kluivert til Lille (Staðfest)

Patrick Kluivert til Lille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lille í Frakklandi hefur fengið framherjann reynda Patrick Kluivert til liðs við sig en frá þessu greindi félagið í gærkvöldi. Ekki var gefið upp hversu langur samningur Kluivert er.
Þessi 31 árs gamli leikmaður lék með PSV Eindohven á síðustu leiktíð en fékk ekki nýjan samning.

Sheffield Wednesday sýndi áhuga á að fá Kluivert á reynslu fyrr í sumar en ferill hans hefur legið niður á við undanfarin ár.

Kluivert sem hefur skorað 40 mörk í 79 landsleikjum fyrir Hollendinga hefur leikið með Ajax, Barcelona, AC Milan og Newcastle á ferlinum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.