31.08.07 - 06:48
Tómas Þór Þórðarson
Wigan fær til sín ungan framherja (Staðfest)

Strákarnir í Wigan að fá nýjan liðsmann

Mynd: Getty Images

Strákarnir í Wigan að fá nýjan liðsmann

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarliðið Wigan hafa gengið frá kaupum á framherjanum Rachid Bouaouzan frá Spörtu í Rotterdam fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 23 ára gamli Marakkó maður hefur skrifað undir þriggja ára samning. Knattspyrnustjóri Wigan, Chris Hutchings sagði að það liðið hefði nú þegar tvo Hollendinga á mála hjá sér hafi hjálpað í samningaviðræðunum.
,,Það kom sér vel að hafa tvo Hollendinga hérna hjá okkur nú þegar. Þeir komu og töluðu um hann við okkur á frídegi sínum og fyrir það er ég mjög þakklátur þeim," sagði Hutchings.
,,Ég veit að hann hefur verið undir smásjá marga liða þannig ég er mjög ánægður að hann hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur. Hann er snöggur leikmaður, góður á báðum fótum og getur því spilað á báðum vængjunum."
,,Ég held að hann hafi akkurat það sem þarf til brunns að bera til þess að spila á Englandi."

Heimild: Sky