Fotbolti.net
31.08.07 - 09:55
Magnús Már Einarsson

Baldur Sigurðsson til Bryne (Staðfest)

Baldur fagnar marki gegn Fram fyrr í sumar.

Baldur fagnar marki gegn Fram fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Baldur Sigurðsson leikmaður Keflvíkinga er farinn til norska 1.deildarliðsins Bryne en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð og hefur leikmaðurinn skrifað undir samning samkvæmt heimasíðu Keflvíkinga.
Þessi fjölhæfi leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum kom til Keflvíkinga frá Völsungi fyrir sumarið 2005 og hefur hann verið fastamaður í liði Keflvíkinga síðan þá.

Baldur hefur leikið alla fimmtán leiki Keflvíkinga í Landsbankadeildinni í sumar og skorað þrjú mörk.

Hann lék á sínum tíma fimm leiki með U-21 árs landsliði Íslendinga og fimm leiki með U-19 ára landsliðinu.

Bryne er í sjötta sæti í norsku fyrstu deildinni en félagið hefur einnig sýnt Gunnari Erni Jónssyni leikmanni Breiðabliks áhuga og hefur hann undir höndum samningstilboð frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.