Fotbolti.net
31.08.07 - 13:19
Hörður Snævar Jónsson

City lánar Bernando Corradi til Parma (Staðfest)

City lánar Bernando Corradi til Parma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bernando Corradi leikmaður Manchester City hefur verið lánaður til Parma á eins ár lánsamningi. Corradi lék með Parma tímabilið 2005/2006.
Corradi sem er 31 árs er ekki ókunnguur Seriu A en á árunum 2002 til 2004 skoraði hann 23 mörk í 69 leikjum fyrir Lazio.

Frá Lazio fór hann til Valencia þar sem hann náði ekki að festa sig í sessi og fór þá til Parma þaðan sem hann fór til Manchester City síðastliðið sumar.

Eftir að hafa fengið að spila þónokkuð mikið á síðustu leiktíð sá Corradi fram á það að hann fá ekki að spila mikið með tilkomu nýrra leikmanna og því ákvað hann að fara til Parma.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.