Fotbolti.net
31.08.07 - 13:58
Hörður Snævar Jónsson
Ítalska deildin

Nonda frá Roma til Galatasaray (Staðfest)

Nonda frá Roma til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Galatasary hefur klófest framherjann, Shabani Nonda frá Roma. Nonda sem kemur frá Kongó var á síðustu leiktíð á láni hjá Blackburn.
,,Ég er stoltur af því að fá tækifæri að spila með svona frábæru félagi," sagði Nonda. ,,Ég fékk ekki nægan spiltíma hjá Roma og ég vildi virkilega fara til Galatasary."

Nonda sem er þrítugur að aldri mun berjast við Ümit Karan og gömlu kempuna Hakan Şükür um framherjastöðuna.

Nonda kom til Roma frá Porto árið 2004 en hefur aldrei náð að festa sig í sessi hjá liðinu.

Heimild: UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.