Fotbolti.net
31.08.07 - 21:14
Magnús Már Einarsson

Miller til Derby County (Staðfest)

Miller fagnar marki með Celtic.

Miller fagnar marki með Celtic.

Canon

Mynd: Getty Images

Derby hefur keypt framherjann Kenny Miller frá Celtic fyrir óuppgefna upphæð og hefur þessi skoski landsliðsmaður skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Miller sem er 27 ára mun þó ekki vera löglegur þegar að Derby mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

,,Hann hefur sannað sig sem markaskorari bæði með félags og landsliði og gefur okkur öðruvísi möguleika frammi. Hann er leikmaður sem gefst aldrei upp," sagði Billy Davies stjóri Derby meðal annars.

Miller sem lék á sínum tíma með Wolves í fimm ára er sagður hafa viljað yfirgefa Celtic en hann hafði gert þrjú mörk í tveimur leikjum með skoska félaginu til þess á tímabilinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.