Fotbolti.net
31.08.07 - 23:16
Magnús Már Einarsson

Danny Murphy og Kuqi til Fulham (Staðfest)

Danny Murphy.

Danny Murphy.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið miðjumanninn Danny Murphy frá Tottenham og framherjann Shefki Kuqi frá Crystal Palace en félagið gekk frá þessu rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans sem lokaði á miðnætti á Englandi eða klukkan 23 að íslenskum tíma.
Murphy sem er fyrrum leikmaður Liverpool hefur verið hjá Tottenham síðan í janúar 2006 þegar hann kom frá Charlton.

Murphy hefur fengið fá tækifæri með Tottenham og ekki leikið með aðalliðinu síðan í janúar. Hann hefur því ákveðið að fara á láni til Fulham í eitt ár.

,,Hann getur brotið varnir á bak aftur með einni sendingu og hann getur skorað mörk þannig að ég er ánægður með að hann valdi Fulham á þessu stigi á ferlinum," sagði Lawrie Sanchez stjóri Fulham.

Kuqi kemur á láni þar til í janúar en honum er ætlað að fylla skarð Brian McBride sem mun ekki leika með Fulham á næstunni vegna hnémeiðsla.

Kuqi sem kom til Palace frá Blackburn Rovers á sínum tíma hefur einnig leikið með Ipswich á Englandi.

Með komu þessara tveggja leikmanna hefur Fulham styrkt sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni og Sanchez er ánægður með þennan liðsauka.

,,Við höfum verið uppteknir undanfarna daga að koma samningum í gegn. Vonandi getum við lokið málunum áður en glugginn lokar og nú getum við einbeitt okkur að því að vinna fótboltaleiki og klifra upp töfluna," bætti Sanchez við.

Heimild: BBC

Shefki Kuqi fagnar marki.

Shefki Kuqi fagnar marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.