Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 31. ágúst 2021 23:28
Victor Pálsson
Griezmann aftur í Atletico Madrid (Staðfest)
Mættur aftur.
Mættur aftur.
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann er genginn aftur í raðir Atletico Madrir frá liði Barcelona eins og talað hefur verið um í dag.

Griezmann hefur undanfarin tvö ár spilað með Barcelona en hann var keyptur fyrir 120 milljónir evra.

Griezmann stóðst í raun aldrei væntingar stuðningsmanna Barcelona sem vildu mun meira frá honum.

Í kvöld var það staðfest að Griezmann væri búinn að skrifa undir lánssamning við sitt fyrrum félag.

Griezmann lék með Atletico frá 2014 til 2019 og skoraði þá tæplega 100 deildarmörk í 180 leikjum.

Atletico getur svo framlengt þennan lánssamning um eitt ár næsta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner