31.08.26 - 13:05
Elvar Geir Magnússon
Bradley Barcola til Liverpool (Staðfest)

Barcola skrifaði undir fimm ára samning.

Mynd: Liverpool

Franski sóknarleikmaðurinn Bradley Barcola er kominn til Liverpool frá Paris Saint-Germain. Samkomulagið er upp á 123 milljóna punda kaupverð. Upphafsgreiðslan er 106 milljónir punda.
Barcola skrifaði undir fimm ára samning og mun klæðast treyju númer 29 hjá Liverpool.
„Það er mikill heiður að fá að spila fyrir Liverpool. Ég er mjög ánægður. Einn af stærstu draumum mínum er að vinna ensku úrvalsdeildina," segir Barcola en hann er 23 ára.
Hann segir að upplifun sín að spila á Anfield sé ógleymanleg.
„Ég fékk tækifæri til að spila tvisvar á þessum leikvangi og ég sá andrúmsloftið og hvernig aðdáendurnir stóðu við bakið á leikmönnum Liverpool. Þegar ég vissi af áhuga Liverpool á mér spurði ég ekki spurninga. Ég vissi að þetta væri mjög stórt félag fyrir mig."

TENGT EFNI
Liverpool að gera stærstu kaupin í glugganum
Bradley Barcola is a Red.
— Liverpool FC (@LFC) August 31, 2026
Allez Les Rouges. pic.twitter.com/Z8eQY71dgQ