Fotbolti.net
31.08.26 - 20:16
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Hutchinson kominn til Milan (Staðfest)

Hutchinson kominn til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska stórveldið AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Omari Hutchinson til félagsins. Hann kemur á lánssamnningi með árangurstengdri kaupskyldu eftir eitt ár með Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni.
Hutchinson til Milan - Vilja Murphy í staðinn
TENGT EFNI

Hutchinson til Milan - Vilja Murphy í staðinn

Hutchinson er 22 ára kantmaður sem gaf sjö stoðsendingar og skoraði eitt mark í 31 úrvalsdeildarleik á síðustu leiktíð.

Hann er uppalinn hjá Arsenal og hefur spilað fyrir Chelsea og Ipswich á ferlinum.

Hutchinson spilaði nokkra leiki fyrir U17 og U19 landslið Englands og lék svo tvo æfingaleiki með A-landsliði Jamaíka, en kaus að spila ekki keppnisleik til að halda möguleikunum á að leika fyrir England opnum. Hann skoraði 3 mörk í 10 leikjum með U21 landsliðinu og vonast til að vinna sér inn sæti í A-landsliðinu.

Nottingham Forest vill fá Jacob Murphy úr röðum Newcastle í staðinn.

Hutchinson er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Milan í sumar eftir Goncalo Ramos, Diego Moreira, Mario Gila, Francesco Camarda og Sankhoun Diawara.

Milan greiðir um 4 milljónir evra til að fá Hutchinson á láni og getur keypt hann fyrir tæpar 45 milljónir til viðbótar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.