Fotbolti.net
31.08.26 - 20:26
Ívan Guðjón Baldursson

Mikey Moore orðinn liðsfélagi Ísaks (Staðfest)

Mikey Moore orðinn liðsfélagi Ísaks (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ísak Bergmann Jóhannesson er kominn með nýjan liðsfélaga í FC Köln sem leikur í efstu deild þýska boltans. Sá heitir Mikey Moore og kemur á lánssamningi frá Tottenham.
Fimm á förum frá Spurs
TENGT EFNI

Fimm á förum frá Spurs

Moore er nýorðinn 19 ára gamall og þykir einn af allra efnilegustu leikmönnum Englands um þessar mundir. Hann hefur gjörsamlega raðað inn mörkunum með unglingalandsliðum Englands þar sem hann á 31 mark í 47 leikjum.

Moore lék á láni hjá Rangers í Skotlandi á síðustu leiktíð og kom með beinum hætti að 10 mörkum í 33 deildarleikjum.

Ísak Bergmann og félagar í Köln hafa farið vel af stað á nýju tímabili í Þýskalandi. Þeir unnu í fyrstu umferð bikarsins og lögðu svo Hoffenheim að velli í fyrstu umferð í deildinni.

Mikey Moore orðinn liðsfélagi Ísaks (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.