31.10.05 - 14:37
Magnús Már Einarsson
Þorvaldur Árnason í Stjörnuna (Staðfest)

Jörundur Áki Sveinsson þjálfari Stjörnunnar og Þorvaldur Árnason með samninginn í dag

Mynd: Stjarnan

Jörundur Áki Sveinsson þjálfari Stjörnunnar og Þorvaldur Árnason með samninginn í dag

Mynd: Stjarnan
Þorvaldur Árnason hefur gengið til liðs við fyrstu deildar lið Stjörnunnar og skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið. Þorvaldur sem lék með Aftureldingu í sumar var markahæstur í annarri deildinni með fjórtán mörk ásamt Guðjóni Baldvinssyni framherja Stjörnunnar sem skoraði einnig fjórtán mörk.
Þorvaldur sem er uppalinn hjá Aftureldingu hefur verið í skóla í Bandaríkjunum undanfarin ár en það að hann skoraði 14 mörk í sumar er athyglisvert þar sem hann lék stundum á miðjunni og stundum í fremstu víglínu.
Spennandi verður að sjá Stjörnuna í fyrstu deildinni á ný en auk Þorvalds og Guðjóns skoraði Dragoslav Stojanovic tíu mörk í annarri deildinni í sumar. Þorvaldur skrifaði undir samning til þriggja ára.