31.10.05 - 17:54
Elvar Geir Magnússon
Brynjar Sverrisson kominn aftur í Þrótt (Staðfest)

Brynjar eftir undirskriftina.

Mynd: www.trottur.is

Brynjar eftir undirskriftina.

Mynd: www.trottur.is
Brynjar Sverrisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Brynjar er Þrótturum að góðu kunnur enda var hann markahæsti leikmaður Þróttar í 1. deildinni, bæði tímabilin 2001 og 2002. Skoraði hann þá tuttugu mörk í 29 leikjum í deildinni.
Brynjar gekk svo til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið 2003 og á sínu fyrsta tímabili með félaginu skoraði hann sjö mörk í 1.deildinni. Hann fótbrotnaði svo fyrir tímabilið 2004 og gat ekkert leikið með liðinu það sumar, kom við sögu í fimm leikjum Stjörnunnar í 2.deildinni í ár en liðið vann sig þá upp í 1.deildina, hann náði ekki að skora í þeim leikjum.
Þá skrifuðu Davíð Logi Gunnarsson, Ingvi Sveinsson og Ólafur Tryggvason allir undir nýjan tveggja ára samning við Þrótt í dag. Þróttur féll sem kunnugt er úr Landsbankadeildinni í sumar.
Þá skrifuðu Davíð Logi Gunnarsson, Ingvi Sveinsson og Ólafur Tryggvason allir undir nýjan tveggja ára samning við Þrótt í dag. Þróttur féll sem kunnugt er úr Landsbankadeildinni í sumar.
