Ísland leikur í Serbíu klukkan 13 - Viðtal við Guðbjörgu
Auglýsing

Frá æfingu Íslands á keppnisvellinum.

Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson

Frá æfingu Íslands á keppnisvellinum.

Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson
Klukkan 13:00 að íslenskum tíma verður flautað til leiks í Serbíu þar sem íslenska kvennalandsliðið mætir heimakonum í öðrum leik sínum í undankeppni HM.
Serbía náði góðum úrslitum um síðustu helgi þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Danmörku.

Íslenska liðið átti dapran leik gegn Sviss í fyrstu umferð og tapaði 0-2 í Laugardal. Mikilvægt er að ná sigri í leiknum í dag.
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá viðtal sem Hilmar Þór Guðmundsson tók við Guðbjörgu Gunnarsdóttur markvörð á æfingu á keppnisvellinum í gær.
Tveir leikmenn úr serbneska landsliðshópnum leika hér á landi en þetta eru þær Danka Podovac í Stjörnunni og Vesna Smiljkovic úr ÍBV.
Heimasíða KSÍ birti í gær viðtal við þær tvær sem má nálgast með því að smella hér en þær tala meðal annars um að serbneska liðið hafi öðlast meira sjálfstraust.
Fótbolti.net fylgist að sjálfsögðu með gangi mála í leiknum í dag og birtir viðtöl að honum loknum